Færsluflokkur: Bloggar
30.1.2010 | 02:12
Mannauðurinn
Eftir bankahrun og í niðursveiflunni hefur orðið til fjöldi lítilla fyrirtækja sem láta frekar lítið fyrir sér fara en eru smám saman að rísa í hinum stóra alþjóðlega viðskiptaheimi. Eitt slíkt vakti athygli okkar á Tíðindi.is nýlega, lítið tölvuleikjafyrirtæki að nafni Dexoris, en tölvuleikjabransinn virðist vera ört stækkandi hér á landi og er þetta annað af tveimur fyrirtækjum sem ég veit af sem búa til leikjaviðbætur í i-línu Apple-risans. Hitt fyrirtækið er Gogogic.
Dexoris eru að gera góða hluti með nýjustu viðbót sinni sem má lesa sér enn betur til um á vefsíðu Tíðindi.is en þar er um að ræða að því er virðist bráðskemmtilega viðbót sem tengist tónlistinni sem þú ert að hlusta á í það og það skiptið. Þetta er enn eitt dæmið um það hvernig hugvitið hefur hjálpað þeim sem hafa átt erfitt með að finna vinnu í kjölfar niðursveiflunnar. Svo megið þið vera viss um það að þegar eitthvað skemmtilegt er að gerast hér á landi eða hérlend fyrirtæki gera það gott utan landsteinanna getið þið lesið ykkur til um það á Tíðindi.is.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2009 | 19:52
Framtíðin
Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. En maður hefur hana jú sjálfur í sínum höndum.
Ég hef áður lýst því yfir á þessu bloggi mínu að ég hafi áhuga á því að starfa í stjórn Samfylkingarinnar. Ég er langt í frá hættur við þá ákvörðun og næstu daga mun jafnvel einhver yfirlýsing líta dagsins ljós hér á þessari síðu. Það verður þó ekki fyrr en að vel athuguðu máli og þegar ég er kominn með sterka stefnu sem mun tryggja mér sigur í þeim átökum, enda tilgangslaust að keppa nema til sigurs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2009 | 00:37
Óþarfur boðskapur
Sem faðir þá hef ég verslað og klætt börnin mín í föt, svokölluð barnaföt. Þegar fötin hafa orðið skítug hef ég sett þau í þvottavél og athugað á þar til gerðan miða hvort setja megi flíkina í þurrkara. "Gríðarlega spennandi saga" hugsa nú eflaust margir. Málið er nefnilega það að ég hef tekið eftir áletrun á barnafötum, yfirleitt koma þau föt frá NEXT en nú hjó ég eftir því að þetta er líka á NIKE fötum.
Þessum fyrirtækjum er nefnilega það annt um fötin sín að þau vilja alls ekki að eigendur þeirra geri þau að eldsmat. Í hálsmálinu stendur með stórum stöfum: KEEP AWAY FROM FIRE. Ég er ekki alveg viss um af hverju framleiðendurnir halda að ég sé eitthvað endilega að fara að setja fötin nálægt eldi eða sérstaklega að slökkva í eldum með þeim. Einhvern veginn efast ég um að barnafötin yrðu það fyrsta sem ég myndi grípa til að verja mig fyrir eldi þrátt fyrir að áletrunin væri ekki þarna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.1.2009 | 00:19
Ritskoðun
Ég las einhvers staðar áður en ég hripaði einhverja færsluna hér á moggabloggið að skoðanir þess sem þetta skrifaði endurspegluðu ekki skoðanir mbl.is. Það finnst mér alveg eðlilegt enda er ég ekki starfsmaður þeirra og veit minnst um hvort ég einhvern tímann verð. Þess vegna finnst mér það heldur betur skjóta skökku við að þeir hjá mbl.is geti ákveðið að ekki megi blogga um ákveðnar fréttir. Til dæmis um þennan Klemenzson sem var að slást við mótmælendurna, þar var öllum bannað að blogga beint um fréttina vegna þess að einhverjir voru harðorðir. Er það þá ekki bara allt í lagi að þetta fólk sé harðort á eigin bloggi? Má semsagt ekki gagnrýna sjálfan fréttaflutninginn eða vissa menn í samfélaginu með vísunum í fréttina sjálfa? Þykir mér það harla skrýtin stefna, enginn er yfir gagnrýni hafinn og fullorðið fólk hlýtur að geta svarað fyrir sig sjálft.
Ég hjó nefnilega eftir því rétt áðan að ekki var hægt að blogga um aðra frétt þar sem talað er um drenginn sem rölti um götur bæjarins með skammbyssu. Faðir hans á byssuna, er með leyfi fyrir henni en enginn skilur af hverju. Það er nefnilega bannað að flytja svona byssu inn til landsins. Og drengurinn hefur víst áður komið við sögu lögreglunnar, pabbi hans er fyrrverandi lögga - spurning hvort hann hafi stundum refsað honum full harkalega sem barni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)