Hvar er Hörður Torfa núna?

Í þessari frétt er bersýnilega verið að blanda saman persónulegu lífi og pólitísku lífi, ofsalega heimskuleg frétt.

Í raun er þetta ekki til þess að hjálpa réttindabaráttu samkynhneigðra því þetta ætti ekki að koma málinu neinn skapaðan hlut við. Með því að stimpla hana, líkt og gert er í fréttinni, er baráttan í raun að snúast í andhverfu sína, það er verið að segja að það sé eitthvað sérstakt og öðruvísi við að vera samkynhneigður. Er það eitthvað sem réttindabaráttufólk vill? 


mbl.is Jóhanna vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta fannst mér líka Róbert og þó þetta sé "heimsmet" í augum heimspressunar, þá hlýtur að vera gúrkutíð fyrst það er búinn til frétt um það.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 18:04

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Mér finnst þetta bara flott!

Hörður og Jóhann - samkynhneigða byltingin og þótt fyrr hefði verið! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 27.1.2009 kl. 18:23

3 Smámynd: Róbert Björnsson

Sem betur fer þykir þetta ekkert merkilegt á íslandi - en fyrir homma og lesbíur úti í hinum stóra heimi - þar sem fordómarnir ráða enn ríkjum eru þetta stórar og gleðilegar fréttir!   Hvergi í veröldinni hefur samkynhneigður einstaklingur orðið forsætisráðherra fyrr - og því vekur þetta verðskuldaða og jákvæða athygli erlendis.

Róbert Björnsson, 27.1.2009 kl. 22:48

4 Smámynd: Margrét Ingadóttir

Afhverju er verið að skilgreina fólk út frá kynhneigð ? og hvernig tengist kynhneigð embættinu sem hún er að taka við?

Margrét Ingadóttir, 28.1.2009 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband